Handbók Hlöðunnar
Verklagsreglur og leiðbeiningar fyrir starfsmenn og leigutaka
Handbók Hlöðunnar
Verklagsreglur og leiðbeiningar fyrir starfsmenn og leigutaka
- Efnisyfirlit
Um Hlöðuna
Hvað er til staðar?
Hlutverk leigutaka
Frágangur leigutaka
Hlutverk starfsmanna
Leiðbeiningar að tækjum:
Kaffivélar
Uppþvottavél
Kastarar
Hljóðnemar
Skjávarpi
Spila tónlist úr tölvu
Tengja eigin tæki við hljóðkerfi
- Um Hlöðuna
Hlaðan er fjölnota salur við gamla Gufunesbæinn á vegum frístundamiðstöðvarinnar Ársels/Gufunesbæjar. Hlaðan hefur í gegn um tíðina nýst vel fyrir ýmiss konar viðburði, til dæmis starfsdaga, fundi, litlar ráðstefnur og ýmiskonar veislur. Hægt er að leigja Hlöðuna hér. Athygli er vakin á að Hlaðan er ekki leigð út fyrir partý og hún er ekki leigð lengur en til miðnættis. Á skrifstofutíma er hægt að panta kaffi og veitingar gegn gjaldi sé þess óskað, sjá nánar hér. Hlaðan er ekki leigð út án starfsmanna utan skrifstofutíma. Sérstaklega er greitt fyrir starfsmenn, 5.200 kr á klukkustund hver starfsmaður í minnst fjórar klukkustundir. Metið er í hverju tilfelli fyrir sig hve þörf er á mörgum starfsmönnum.
Við Hlöðuna er stór pallur með hlöðnu kolagrilli sem upplagt er að nýta á sólríkum dögum. Frístundagarðurinn við Gufunesbæ er í nánasta umhverfi Hlöðunnar en þar er að finna ýmiskonar afþreyingu s.s. frisbígolfvöll, strandblaksvelli, petanque-velli, rathlaupabraut, ærslabelg, hjólabretttasvæði og síðan fjölskyldusvæði en þar ýmis leiktæki eru fyrir yngri kynslóðina. Einnig eru stórar grasflatir sem hægt er að nýta í alls kyns leiki og hópefli.
Hlaðan tekur 90-100 manns í sæti í sal. Á efri hæð er fundarborð, setustofa með sjónvarpi sem hægt er að tengja tölvu við og eldhúsaðstaða. Fimm salerni eru í Hlöðunni, þar af er eitt með aðgengi fyrir fólk í hjólastól. Aðgengi er fyrir fólk í hjólastól inn í Hlöðuna um hurð á norðurhlið hússins, um neðri hæð og út á pall. Fyrir utan Hlöðuna eru tvö bílastæði fyrir fólk í hjólastól.
- Hvað er til staðar
Hljóðkerfi
Hægt er að tengja tölvu við hljóðkerfi við skjávarpatjald inn í sal, í diskóbúri er hægt að tengja tölvu, síma, spjaldtölvur o.fl. með hljóðtengi (Aux) og lightning/aux breytistykki eða spila úr tölvu sem er á staðnum.
Skjávarpi
Hægt er að tengja tölvu við skjávarpa inn í sal eða varpa upp úr tölvu sem er á staðnum í gegn um netið eða með usb-kubb.
Glærustjóri er á staðnum
Flettitafla með blöðum
Púlt
Míkrafónar, bæði þráðlausir og tengdir í vegg
20 borð með málin 80*160 cm
2 borð með málin 80*180 cm
2 borð með hækkanlega fætur með málin 60*120 cm
2 háir barnastólar
Eldhús:
Heimilisofn og helluborð
Hentar til að hita upp veitingar, tækin ráða ekki við að elda fyrir stóra hópa eða hita upp mikið magn matar
Ísskápur
Aukaísskápur með frysti er staðsettur í geymslu við hliðina á Hlöðunni ef þarf
2 stórar (20 bolla) kaffivélar og 6 hitakönnur með pumpu
Leirtau fyrir 90 manns
Diskar, glös, hnífapör, kaffibollar, kökudiskar, léttvínsglös, freyðivínsglös
Allur helsti borðbúnaður
- Hlutverk leigutaka á leigutíma
Að minnsta kosti einn ábyrgðaraðili á vegum leigutaka skal vera til staðar á meðan viðburði stendur. Ábyrgðaraðili mætir á undan gestum og er á staðnum þar til allir gestir eru farnir úr húsi og frágangi lokið. Ábyrgðaraðili sér til þess að öllum skyldum leigutaka sé sinnt og er tengiliður starfsmanna.
Leigutaki sér um að raða upp borðum og stólum fyrir viðburð og skreyta salinn. Ekki er í boði að skreyta með confetti þar sem það litar gólf, innréttingar og húsbúnað. Ekki er hægt að komast fyrr inn í salinn nema sérstaklega sé um það samið.
Almennur frágangur er á ábyrgð leigutaka.
- Frágangur leigutaka
Taka inn allt það sem hefur verið farið með á útisvæði.
Henda rusli á palli og útisvæði hafi það verið notað.
Þrífa grill á palli hafi það verið notað.
Raða stólum á þar til gerðar grindur.
Þurrka af borðum með rakri tusku.
Raða borðum á þar til gerða vagna eins og kemst. Rest af borðum má skilja eftir á miðju gólfi í sal.
Fjarlægja allan búnað, óskilamuni, afgang af mat, skreytingar og annað sem leigutaki eða aðrir á hans vegum hafa komið með í Hlöðuna. Gæta skal þess að ekki verði eftir leifar af límbandi, kennaratyggjói, böndum eða öðru sem kann að hafa verið nýtt til að festa upp skreytingar eða plaköt.
Flokka og henda öllu rusli í viðeigandi flokkunarílát.
Ef Hlaðan er leigð án starfsmanna bætist eftirfarandi við:
Skilja við allan búnað Hlöðunnar á sínum stað
Ganga vel frá diskóbúri:
Draga skjávarpatjald alla leið upp
Slökkva á myndvarpa á rofa á vegg
Öll tæki í upprunalegum stillingum
Slökkva á fjöltengi undir borði
Slökkva á tölvu
Gæta að því að allar snúrur og fylgihlutir með myndvarpa séu í merktum kassa sem á að liggja á borði
Snúrur, míkrafónar og aðrir hlutir fari á viðeigandi staði
Vaska upp allt leirtau sem hefur verið notað (sjá leiðbeiningar fyrir uppþvottavél á vegg í eldhúsi).
Ganga frá þurru og hreinu leirtaui á sína staði.
Þrífa og tæma uppþvottavél samkvæmt leiðbeiningum.
Kaffikönnur skulu vera hreinar, skola innan úr könnunum og rörum á stút í pumpukönnu og skilja eftir opnar svo lofti um.
Þurrka af borðflötum í eldhúsi, vask og blöndunartækjum.
Skilja óhreinar tuskur og viskastykki eftir í ræstikompu, hengt upp á snaga svo það þorni.
Gæta þess að dregið sé fyrir glugga, ofnar stilltir á 2-3, öll ljós séu slökkt, gluggi á efri hæð lokaður og allar hurðir læstar áður en húsnæði er yfirgefið.
Skilja þarf við salinn tilbúnum til ræstingar.
Ef þrif og frágangur er ekki í samræmi við kröfur getur það lent á leigutaka að borga aukalega fyrir frágang.
Tilkynna skal í síma 411 5600 ef tjón verður á útbúnaði í Hlöðunni.
Hægt er að nálgast óskilamuni í Gufunesbæ næsta virka dag eftir viðburð.
- Hlutverk starfsmanna á viðburði
Hlaðan er ekki leigð út utan skrifstofutíma án starfsmanns/starfsmanna. Fjöldi starfsmanna sem þarf á viðburð er metinn í hverju tilfelli fyrir sig með tilliti til áætlaðs gestafjölda og umfangi viðburðar. Vakin er athygli á að kostnaður vegna starfsmanna er ekki innifalinn í leiguverði fyrir Hlöðuna.
Hlutverk starfsmanna í Hlöðunni er eftirfarandi:
Starfsmaður er til staðar í Hlöðunni allan tímann meðan á viðburði stendur.
Starfsmaður er leigutaka innan handar varðandi þjónustu:
Aðstoðar við að taka af borðum á meðan á viðburði stendur. Ekki er ætlast til að starfsmaður þjóni til borðs eða beri fram drykki.
Hellir upp á kaffi.
Hitar upp veitingar.
Aðstoðar við að fylla á hlaðborð og drykkjarborð.
Sér um uppvask og frágang leirtaus.
Heldur húsnæði snyrtilegu á meðan viðburði stendur, t.d. tæmir rusl, þurrkar upp ef sullast niður og fyllir á pappír á salernum.
Hefur umsjón með húsnæði, tækjum og öðrum búnaði.
Leiðbeinir með hljóð- og myndkerfi.
Aðstoðar leigutaka við frágang ef tími gefst.
Sér til þess að leigutaki skili af sér sal í samræmi við verklagsreglur.
Er ábyrgur fyrir því að allur búnaður sem tilheyrir Hlöðunni sé á sínum stað þegar Hlaðan er yfirgefin.
Starfsmaður er ábyrgur fyrir lokafrágangi, svo sem að gæta þess að gluggar séu lokaðir, hurðar læstar og þjófavarnarkerfi sé virkt.
- Kaffivélar
Setja tóma könnu með pumpu á kaffivélina. Kaffikönnur eru geymdar ofan á eldhúsbekk og á neðstu hæð í skáp við hliðina á ísskáp.
- Setja 2 lítra af vatni í kaffivélina í hólf ofan á vélinni. Blá vatnskanna með mælieiningum er geymd við hliðina á annarri kaffivélinni.
- Einn kaffipoki settur í hólf fyrir kaffi, gæta þarf að því að pokinn liggi alls staðar að málminum svo ekki sé hætta á að hann leggist niður þegar hann blotnar og korgur fari í kaffið. Kaffipokar eru geymdir í skál á hillu í eldhúsinu.
- Tvö rúmlega full mál af kaffi sett í kaffipokann. Hvítt mál er geymt við hliðina á kaffikönnu.
- Kveikja á kaffivél. Fljótlega fer kaffi að leka í könnuna. Þegar kaffi er hætt að leka í könnuna er óhætt að taka hana undan vélinni.
- Leigutaki skal koma bæði með kaffi/te og mjólk með sér á viðburð nema sérstaklega sé samið um annað fyrir viðburð.
- Uppþvottavél
Kveikja
Opna vélina og sjá til þess að sigtið sé fast í botninum. Sé það laust skal festa það með því að ýta tappanum (á sigtinu) niður og snúa réttsælis þar til hann festist.
Hafa vélina lokaða og halda inni START-takka í nokkrar sekúndur þar til vélin fer að fylla sig af vatni.
Þegar vélin hefur lokið við að fylla sig og stöðugt, grænt ljós logar á start-takka er hægt að byrja að þvo. Bakkar undir leirtau eru hægra megin við vaskinn.
Áður en vélin er sett af stað í fyrsta þvott þarf að velja þvottakerfi. Ýtið á takkann með þríhyrningnum þar til ljós logar við litla mynd af 2 diskum. Ef það kerfi er nú þegar valið má setja hana strax af stað.
Athugið að það þarf að skola allar matarleifar af leirtaui áður en það fer í vélina.
Hafi fituríkur matur verið á leirtaui gæti þurft að sápuþvo það létt áður en það fer í vélina.
Brúnir blettir í kaffibollum og varalitur á glösum og bollum nást ekki af í vélinni, slíka bletti þarf að skrúbba af áður en það fer í uppþvottavélina.
Til að setja vél af stað er ýtt á START-takkann. Þvotturinn tekur u.þ.b. 4 mínútur og er lokið þegar ljósið á START-takkanum verður aftur grænt og er þá óhætt að opna vélina og taka bakkann með leirtauinu út.
Skipta þarf um vatn ef það er orðið gruggugt. Þá skal fylgja leiðbeiningum um hvernig skal tæma vélina og endurtaka síðan skrefin til að fylla hana.
Slökkva/tæma
Hafa vélina lokaða.
Ýta á hnappin með þríhyrningnum þar til þvottakerfið “c1” kemur upp á skjánum.
Ýta á start-takkann og opna strax vélina og losa tappann með því að snúa honum rangsælis. Að því loknu er vélinni lokað aftur þar til kerfið hefur klárast.
Þegar uppþvottavélin hefur lokið við að tæma sig slekkur hún sjálfkrafa á sér.
- Kastarar
Kveikja á tökkum á ljósmagnara (er uppi á hillu). Ýta öllum tökkum til VINSTRI
Ljósmixer (box á vegg (svarta/stál)) með chase1 til chase 6: Kveikt á on takka (takki ofan á boxinu)
chase 1 og chase 2 = svartir kastarar sem beina ljósi á svið:
Ýta tökkunum og master upp
chase 3, chase 4, chase 5, chase 6 = kastarar fyrir ofan svið (rauðir og bláir). Ýta tökkum upp. (+ speed upp ef blikka)
Slökkva á tökkum á ljósmagnara (sem er uppi á hillu). Ýta öllum tökkum til HÆGRI
Slökkva á ljósmixer (box á vegg (svarta(stál)). Slökkt á of takka (takki ofan á boxinu)
- Hljóðnemar
Tveir þráðlausir hljóðnemar eru geymdir í skáp undir borði í diskóbúri.
Byrjað á að kveikja á hljóðnemanum með takka á sjálfum hljóðnemanum.
Ef rafhlaðan er búin eru nýjar í merktu boxi í efstu skúffunni undir borði og notaðar rafhlöður fara í merkt box.
Kveikt á fjöltengi undir borði.
Hækkað með sleðum á hljóðmixer á rásum merktum laus mic og master (lengst til hægri).
- Skjávarpi
Að tengja skjávarpa við tölvu í sal
Byrjað er á að tengja tölvu við HDMI-tengi í vegg við skjávarpatjald. Í diskóbúri er kassi með snúrum, fjarstýringu, breytistykkjum og fleiru sem gæti þurft þegar verið er að tengjast skjávarpa.
Kveikja á rofa á vegg hægra megin í diskóbúri (rofi merktur SKJÁVARPI).
Snúa hringlaga rofa hægra megin á vegg í diskóbúri (fyrir ofan rofa merktur skjávarpi) til að setja tjaldið niður.
Kveikja á skjávarpanum með on takka á fjarstýringu.
Skjávarpinn finnur sjálfkrafa þá tölvu sem verið er að nota. Ef það virkar ekki gæti þurft að ýta á „Source search“ takka á fjarstýringu.
Ef á að nota hljóðkerfi þarf að kveikja á fjöltengi í diskóbúri og hækka í viðeigandi rásum (merktar HDMI eða RCA svið, eftir því hvort tengið er verið að nota) á mixer í diskóbúri.
Muna að ganga frá snúrum og fjarstýringu í skúffu í diskó-búri.
Til að nota glærustjóra (geymdur í sama kassa og snúrur og fjarstýring) þarf að opna rafhlöðuhólfið á glærustjóranum og stinga USB-kubb sem er geymdur þar í samband við tölvuna.
Að notkun lokinni skal ganga frá því sem notað var:
- Slökkva á skjávarpa á rofa í diskóbúri.
- Draga skjávarpatjald upp.
- Hafa alla sleða á mixer í neðstu stöðu.
- Slökkva á fjöltengi fyrir hljóðkerfi.
- Muna að fjarlægja usb-kubb fyrir glærustjóra úr tölvu.
- Setja allar snúrur og fylgihluti á sinn stað í kassanum.
- Hljóðkerfi